27.09.26 - 09:50
Elvar Geir Magnússon
Albani dæmir leik Íslands í Lúxemborg

Enea Jorgji dæmdi heimaleik Víkings gegn Borac Banja Luka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir dapra frammistöðu og jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar þá fljúga strákarnir okkar til Lúxemborgar í dag þar sem þeir eiga leik á þriðjudag.
Það verða albanskir dómarar sem dæma Lúxemborg - Ísland en aðaldómarinn heitir Enea Jorgji. Hann dæmdi Evrópuleik Víkings gegn Borac Banja Luka hér á íslandi fyrr á árinu en Víkingur tapaði 1-3. Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net á leiknum, var ekkert sérlega hrifinn af frammistöðu Jorgji og gaf honum fimm í einkunn.
VAR dómarinn í leiknum í Lúxemborg kemur frá Ítalíu og heitir Daniele Doveri.

Austurrískir dómarar munu dæma U21 landsleik Íslands gegn Sviss á þriðjudaginn en aðaldómarinn heitir Jakob Semler.