Stjörnuleikmaður Japan vill skipta í betri deild

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hinn 28 ára gamli Daizen Maeda skoraði eitt mark í þremur leikjum er Japan var slegið úr leik af Brasilíu á heimsmeistaramótinu.
Maeda er lykilmaður í liði Celtic í skoska boltanum og bar liðið á herðum sér á lokahnykk skoska tímabilsins með 9 mörkum í síðustu 7 leikjunum. Þannig hjálpaði hann liðinu að vinna Skotlandsmeistaratitilinn eftir ótrúlega dramatíska titilbaráttu, samhliða skoska bikarnum.
„Mér líður eins og ég þurfi að taka annað skref áfram á ferlinum til að halda áfram að bæta mig sem leikmaður. Ég get ekki haldið áfram að spila á þessu gæðastigi, ég verð að bæta mig," sagði Maeda eftir að Japan var slegið úr leik af Brasilíu.
Celtic hafnaði 20 milljónum punda frá Wolfsburg í fyrrasumar og býst félagið við fleiri tilboðum í leikmanninn sinn í sumar. Maeda kom í heildina að 27 mörkum í 54 leikjum með Celtic á síðustu leiktíð eftir að hafa komið að 45 mörkum í 51 leik tímabilið þar á undan.
Maeda var meðal bestu leikmanna Japan á HM og hefur í heildina skorað 5 mörk í 30 landsleikjum.