22.07.26 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson
Fernandes með draumamark í fyrsta leik - Andri byrjaði í tapi gegn Forest

Mateus Fernandes skoraði sturlað mark sem má sjá neðst í fréttinni

Mynd: Tottenham

Portúgalski miðjumaðurinn Mateus Fernandes var hetja Tottenham þegar liðið vann 1-0 sigur á MK Dons í fyrsta leik sínum á undirbúningstímabilinu.
Fernandes gekk til liðs við Tottenham frá West Ham fyrr í mánuðinum fyrir 85 milljónir punda.
Tottenham lék sinn fyrsta æfingaleik í sumar þegar liðið marði 1-0 sigur á MK Dons. Fernandes byrjaði leikinn og þurfti aðeins tæpar þrjár mínútur til að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið. Hann hamraði boltann viðstöðulaust á lofti utan teigs eftir hornspyrnu.
Sandro Tonali var einnig í byrjunarliði Tottenham, aðeins nokkrum vikum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Newcastle United.
Andri Lucas Guðjohnsen byrjaði hjá Blackburn Rovers, sem tapaði 3-0 fyrir Nottingham Forest. Hann lék í rúman klukkutíma.
Igor Jesus, Arnaud Kalimuendo og Taiwo Awoniyi skoruðu mörk Forest.

What a hit, Mateus Fernandes ????
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) July 22, 2026
Watch our pre-season games live on SPURSPLAY!