Fotbolti.net
02.07.26 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Maður dagsins á HM - Reifst við samherja og tók svo liðið á herðarnar

Svakaleg fyrirliðaframmistaða frá Tielemans.

Svakaleg fyrirliðaframmistaða frá Tielemans.

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Belgía vann svakalegan endurkomusigur gegn Senegal í 32-liða úrslitum HM. Belgía var lakara liðið langstærstan hluta leiksins og engin teikn á lofti um að einhver endurkoma væri í kortunum.

Þegar flautað var til vatnspásu seinni hálfleiks var Senegal 2-0 yfir og Youri Tielemans, fyrirliði Belga, var í hávaðarifrildi við samherja sinn Leandro Trossard. Liðsfélagar þeirra stigu á milli. Það virtist allt í upplausn hjá belgíska liðinu.
Sjáðu HM mörkin: Belgísk endurkoma sem var ekki í kortunum
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Belgísk endurkoma sem var ekki í kortunum

En mark varamannsins Romelu Lukaku á 86. mínútu kveikti vonarneista sem varð að vonarbáli. Á 89. mínútu kom jöfnunarmark þegar Trossard átti fyrirgjöf inn í teiginn og hver annar en Tielemans skallaði boltann inn. Liðsfélagarnir sem höfðu hnakkrifist um 20 mínútum áður bjuggu saman til mark.

2-2 eftir heðfbundinn leiktíma og þá var haldið í framlengingu. Allt stefndi í vítakeppni þegar Belgía fékk umdeilt víti í lok framlengingar. Eftir langa og ítarlega VAR skoðun benti dómarinn frá Hondúras á punktinn og þá steig Tielemans auðvitað fram, sýndi stáltaugar og átti óverjandi spyrnu. Feikilegt öryggi.

Tielemans, sem er 29 ára leikmaður Aston Villa, tók leikinn í sínar hendur og er að sjálfsögðu maður dagsins á HM.

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Tielemans tók leikinn í sínar hendur.

Tielemans tók leikinn í sínar hendur.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.