Jói Kalli: Hann stóð sig eins og hetja í dag
Auglýsing

Jóhannes Karl Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari HK í Inkasso-deild karla, var ánægður með 1-0 sigur liðsins á Fylki í kvöld. Liðið fer upp í sjötta sæti með sigrinum en liðið er með 24 stig.
HK hafði unnið síðustu þrjá leiki sína í deildinni fram að þessum leik og Ásgeir Marteinsson sá svo til þess að þetta yrði fjórði sigurinn í röð. HK er byrjað að banka á dyrnar í toppbaráttunni.
„Þeir voru það, ansi mikilvægir. Frábært að koma og spila hérna við hörkulið Fylkismanna. Það er vonum framar að ná að vinna þennan leik, við ætluðum að gera allt sem í okkar valdi stóð til að trufla þá og það heppnaðist,\" sagði Jóhannes Karl.
„Við náum að skora snemma í leiknum, frábært mark. Ég hefði verið sáttur með stig í dag en strákarnir lögðu ótrúlega mikla vinnu í dag til að ná þessum sigri og ég get ekki hrósað þeim nógu mikið fyrir þessa frammistöðu í dag.\"
Sigur HK-inga var afar taktískur. Liðið var vel skipulagt frá aftasta varnarmanni og skilaði það sigrinum í dag.
„Við reyndum að leggja upp ákveðna hluti og reyndum að þétta öll svæðin okkar. Við ætluðum að gefa þeim lítinn tíma og pláss og þegar uppi var staðið var svolítið mikið af löngum boltum sem Fylkismenn voru að reyna að spila til þess að reyna að opna okkur en við díluðum vel við það í dag,\" sagði Jóhannes.
Fylkir fékk víti í byrjun síðari hálfleiks er Leifur Andri Leifsson braut af sér innan teigs en Arnar Freyr Ólafsson varði spyrnuna.
„Þetta er langt frá mér en ég hef trú á því að dómarinn hafi haft rétt fyrir sér. Hann dæmdi þennan leik mjög vel og ætli þetta hafi ekki verið víti.\"
„Arnar er frábær markvörður og getur varið. Hann stóð sig eins og hetja í dag, frábært að hann hafi varið þetta. Hjörvar er náttúrlega okkar markmannsþjálfari og er að kenna þessum strákum og hann stendur sig bara vel,\" sagði hann í lokin.