Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. ágúst 2022 18:30
Elvar Geir Magnússon
Zielinski hafnaði West Ham
Mynd: Getty Images
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum hafnaði pólski miðjumaðurinn Piotr Zielinski hjá Napoli því að ganga í raðir West Ham.

Ákvörðunin var ekki fjárhagsleg en West Ham var tilbúið að ganga að 40 milljóna evra verðmiða ítalska félagsins.

Zielinski er 28 ára og ku ekki vilja taka þetta skref á þessum tíumapunkti ferilsins.

Hann hefur spilað 72 landsleiki fyrir Pólland og er samningsbundinn Napoli til sumarsins 2024.

Hann hefur nánast allan feril sinn leikið á Ítalíu, kom í gegnum akademíu Udinese og var svo seldur til Napoli eftir lánstíma hjá Empoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner