02.08.26 - 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikir: Leeds gekk frá Liverpool í seinni hálfleik

Dominik Calvert-Lewin

Mynd: EPA

Dominik Calvert-Lewin

Mynd: EPA
Úrvalsdeildaræfingamóti í Bandaríkjunum lauk í kvöld en Liverpool, Leeds, Sunderland og Wrexham tóku þátt í mótinu.
Nordi Mukiele var hetja Sunderland í 1-0 sigri á Wrexham fyrr í dag. Bæði lið enduðu með þrjú stig.

Liverpool og Leeds mættust í kvöld. Hinn 22 ára gamli Luke Chambers kom Liverpool yfir þegar hann skoraði af stuttu færi. Milos Kerkez flikkaði boltanum á hann með hælnum eftir hornspyrnu frá Dominik Szoboszlai.
Florian Wirtz bætti öðru markinu við undir lok fyrri háflleiks með skoti úr teignum eftir sendingu frá Jeremie Frimpong.
Dominik Calvert-Lewin, Brenden Aaronson, Sean Longstaff og Harry Wilson, fyrrum leikmaður Liverpool, komu inn á hjá Leeds í hálfleik.
Hællinn á Kerkez kom aftur við sögu eftir klukkutíma leik. Hann hælaði boltann fyrir fætur Ethan Ampadu á miðjum vallarhelmingi Liverpool. Ampadu lagði boltann á Aaronson sem skoraði.
Calvert-Lewin jafnaði metin þegar hann skoraði af stuttu færi eftir að varnarmenn Liverpool gleymdu honum á fjærstönginni. Longstaff kom síðan Leeds yfir strax í kjölfarið eftir sendingu frá Aaronson. Calvert-Lewin innsiglaði sigur Leeds undir lokin.
Leeds lauk mótinu á toppnum með sex stig eins og Liverpool sem hafnaði í 2. sæti.
Liverpool 2-4 Leeds
1-0 Luke Chambers ('7 )
2-0 Florian Wirtz ('40 )
2-1 Brenden Aaronson ('60 )
2-2 Dominic Calvert-Lewin ('71 )
2-3 Sean Longstaff ('73 )
2-4 Dominic Calvert-Lewin ('85 )
Wrexham 0-1 Sunderland
0-1 Nordi Mukiele ('34 )