02.08.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alonso um tímann hjá Real Madrid: Fékk ör sem er gróið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Xabi Alonso, nýráðinn stjóri Chelsea, er staðráðinn í að sýna sig og sanna eftir vonbrigðadvöl hjá Real Madrid.
Alonso er 44 ára gamall en hann hóf stjóraferil sinn árið 2022 þegar hann tók við Leverkusen en hann hafði stýrt varaliði Real Sociedad frá 2019.

Hann gerði stórkostlega hluti hjá Leverkusen og vann deild og bikar tímabilið 2023/24. Hann tók við Real Madrid í maí 2025 en yfirgaf félagið í janúar eftir að fréttir bárust af deilum við leikmenn liðsins.
„Sem betur fer hef ég ekki fengið mörg ör á ferlinum. Ég fékk ör og nú er það gróið og ég er staðráðinn í að njóta næsta skrefs eins og ég gerði þegar ég byrjaði í Madríd," sagði Alonso.
„Ég hef verið mjög gagnrýninn á sjálfan mig varðandi hluti sem gengu ekki upp, hef hugsað hvað ég gæti hafa gert betur. Maður lærir af vonbrigðum."