02.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Arteta hló þegar hann var spurður út í Vini Jr

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hló og gekk út úr viðtali er hann var spurður út í áhuga félagsins á brasilíska sóknarmanninum Vinicius Junior.
Arteta ræddi við fjölmiðla eftir 4-1 sigur Arsenal á Girona í fyrsta æfingaleik liðsins í gær.
Hann var meðal annars spurður út í leikmannamarkaðinn og hvort Arsenal ætlaði að styrkja hópinn enn frekar.
Arteta sagði félagið þurfa að bæta við sig til að halda í við helstu keppinautana á komandi tímabili.
„Við erum mjög virkir á markaðnum og reynum stöðugt að bæta liðið og þróa það áfram. Við búumst við hreyfingum á næstu vikum enda viljum við styrkja okkur, rétt eins og önnur félög. Maður þarf ekki annað en að horfa á markaðinn og hvað keppinautar okkar eru að gera.“
„Við ætlum ekki að sitja auðum höndum. Við erum mjög metnaðarfullir og vitum hvað við viljum gera,“ sagði Arteta.
Hann var því næst spurður um orðróminn sem tengir Vini Jr við Arsenal. Arteta hló við spurningunni og gekk síðan í burtu án þess að svara.
Viðbrögðin eru varla til þess fallin að draga úr orðrómnum en möguleg félagaskipti velta fyrst og fremst á því hvort Real Madrid sé tilbúið að selja Brasilíumanninn.