02.08.26 - 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Böddi: Davíð klókur og leiðir Helga í gildru og fiskar Gísla út af
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Víkingur skildu jöfn í dag. Fótbolti.net ræddi við Böðvar Böðvarsson, leikmann ÍA, eftir leikinn. Gísli Eyjólfsson fékk rauða spjaldið undir lok leiksins og þá vildi Böðvar fá vítaspyrnu stuttu áður.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 Víkingur R.
„Mér finnst Gísli bara reisa sig upp eftir að hafa brotið á honum. Davíð hallar sér yfir hann og er klókur og lokkar Helga í þessa gildru og fiskar hann útaf. Ég var alveg ofan í þessu og er hlutdrægur að sjálfsögðu. Mín upplifun var að Gísli hafi verið að reisa sig upp og Davíð hafi lokkað hann í þetta, það er allavega ekki séns að hann hafi meitt sig mikið við þetta," sagði Böddi.
„Ég fæ langan bolta frá Erik og mér finnst ég vera fyrstur á boltann og í kjölfarið fer hann í mig. Mér finnst það víti, hann kemur á blindu hliðina á mér. Ég veit ekki hvernig þetta lítur út í sjónvarpinu."
Böddi var svekktur með að fá ekki meira út úr leiknum.
„Við vissum að ef það væri einhvern tímann séns að vinna Víkinga þá væri það í dag. Það er búið að vera mikið álag á þeim og þessi gervigras lið hafa verið að ströggla við að koma á grasið. Upplifun mín bæði í fyrra með FH og núna með ÍA, við litum á þetta sem helvíti góðan möguleika að ná í þrjú stig en því miður klikkaði það."
Liðið hefur nælt í fjögur stig úr síðustu tveimur leikjum en þar á undan tapaði liðið fimm leikjum í röð.
„Við erum búnir að átta okkur á því hvað gerir okkur gott lið og hvað gerir okkur lélegt lið. Við erum búnir að fara aftur í grunninn. Mér finnst menn vera hlaupa fyrir hvorn annan sem hefur vantað í þessari taphrinu. VIð vorum inn í skelinni á okkur, hver í sínu horni og enginn að pæla í að bakka upp liðsfélagann. Í hvert skipti sem við töpuðum einvígi í dag var maður mættur, menn voru að bakka hvern annan upp út um allan völl. Talandi, gott orkustig og klárlega eitthvað sem við getum byggt á. Ef við spilum svona erum við að fara fá fullt af stigum, það verður þá líka að vera svona í hverjum einasta leik."