02.08.26 - 13:21
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið ÍA og Víkings: Fimm breytingar hjá gestunum

Ögmundur kemur í markið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur kemur í markið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tekur á móti Víkingi í 17. umferð Bestu deildar karla á ELKEM-vellinum klukkan 14:00 í dag.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 0 Víkingur R.
Aðeins ein breyting er á liði Skagamanna frá 5-1 sigrinum á Stjörnunni í síðustu umferð. Gísli Laxdal Unnarsson kemur inn fyrir Jón Gísla Eyland Gíslason.
Sölvi Geir Ottesen gerir fimm breytingar á liði Víkinga sem féll úr leik gegn Hapoel Beer Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.
Ögmundur Kristinsson tekur stöðu Arons Snæs Friðrikssonar í markinu. Þá koma Viktor Örlygur Andrason, Sveinn Margeir Hauksson, Ármann Ingi Finnbogason og Stígur Diljan Þórðarson allir inn í byrjunarliðið.
Óskar Borgþórsson, Daníel Hafsteinsson, Aron Elís Þrándarson og Tarik Ibrahimagic detta úr liðinu og eru ekki í leikmannahópnum. Óskar og Tarik verða frá keppni næstu mánuðina.
Víkingar geta náð níu stiga forskoti á toppnum með sigri en Skagamenn komast upp í efri hluta deildarinnar með þremur stigum.

Byrjunarlið ÍA
Árni Marinó Einarsson, Baldvin Þór Berndsen, Haukur Andri Haraldsson, Guðmundur Þórarinsson, Viktor Jónsson, Gísli Eyjólfsson, Erik Tobias Tangen Sandberg, Gísli Laxdal Unnarsson, Böðvar Böðvarsson (fyrirliði), Markús Páll Ellertsson, Styrmir Jóhann Ellertsson
Byrjunarlið Víkingur R.
Ögmundur Kristinsson, Peter Oliver Ekroth (fyrirliði), Gunnar Vatnhamar, Viktor Örlygur Andrason, Helgi Guðjónsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Karl Friðleifur Gunnarsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Sveinn Margeir Hauksson, Ármann Ingi Finnbogason, Stígur Diljan Þórðarson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 4 | Breiðablik | 16 | +9 | 29 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍA | 16 | -8 | 18 |
| 8 | ÍBV | 17 | -9 | 16 |
| 9 | KA | 16 | -8 | 15 |
| 10 | Stjarnan | 16 | -12 | 15 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 16 | -25 | 12 |