02.08.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Elías hafði betur gegn Guðlaugi Victori - Stefán Ingi skoraði sigurmarkið

Elías Rafn og félagar eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir

Mynd: EPA

Stefán Ingi skoraði sigurmark Go Ahead

Mynd: GAE

Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna hjá Midtjylland sem vann 2-1 sigur á Guðlaugi Victori Pálssyni og félögum hans í Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Horsens er nýliði í dönsku úrvalsdeildinni og náði í stig í fyrstu umferðinni en tókst ekki að fylgja því eftir í dag.
Gíneumaðurinn Franculino kom Midtjylland yfir með draumamarki fyrir utan vítateig á 33. mínútu áður en Friday Etim bætti við öðru marki.
Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland en Guðlaugur Victor var í byrjunarliði Horsens. Nýliðarnir eru með eitt stig eftir tvær umferðir en Midtjylland er með fullt hús.
Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður hjá Malmö sem marði 2-1 sigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni.
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Gautaborgar sem lagði Degerfors að velli, 2-0. Hjörtur Hermannsson sat á bekknum en kom ekki við sögu, líklega vegna álagsstýringar eftir að hafa leikið tæpar 120 mínútur í forkeppni Sambandsdeildarinnar í vikunni.
Gautaborg er í 13. sæti með 16 stig en Malmö í því fimmta með 23 stig.
Stefán Ingi Sigurðarson skoraði sigurmark Go Ahead Eagles í 1-0 sigri á Luton í æfingaleik. Hann og Alfons Sampsted voru báðir í byrjunarliði hollenska félagsins.
Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum og lék síðustu fimmtán mínúturnar með Gwangju sem tapaði 2-0 fyrir Daejeon í suðurkóresku úrvalsdeildinni.
Gwangju er í vondum málum á botninum með aðeins tíu stig. Félagið hefur átt erfiða mánuði en vegna brota á fjárhagsreglum deildarinnar mátti það ekki fá nýja leikmenn fyrr en um mitt sumar.