Fotbolti.net
02.08.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Fer til Leverkusen fyrir 30 milljónir evra

Fer til Leverkusen fyrir 30 milljónir evra
Canon

Mynd: EPA

Spænski vinstri bakvörðurinn Miguel Gutierrez er á leið til Bayer Leverkusen frá Napoli.
Leverkusen seldi Alejandro Grimaldo til Atletico Madrid í sumar og er Gutierrez ætlað að fylla skarð hans.

Gutierrez er 25 ára gamall og hefur verið á mála hjá Napoli síðasta árið. Þar áður gerði hann frábæra hluti með Girona sem komst óvænt í Meistaradeildina árið 2024.

Hann er nú á leið til Leverkusen fyrir 30 milljónir evra. Félögin hafa náð munnlegu samkomulagi og aðeins á eftir að ganga frá læknisskoðuninni og skrifa undir skjölin.

Gutierrez hefur leikið með öllum yngri landsliðum Spánar og var meðal annars í U23-ára liðinu sem varð Ólympíumeistari árið 2024. Hann á þó enn eftir að spila með spænska A-landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.