02.08.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Garcia og Palacios í læknisskoðun hjá Fulham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gonzalo Garcia og Cesar Palacios eru í læknisskoðun hjá Fulham en þeir eru að ganga til liðs við félagið frá Real Madrid. Fulham borgar rúmlega 40 milljónir punda fyrir þá.
Garcia er 22 ára gamall framherji sem kom að ellefu mörkum í 39 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Hann var markahæstur á HM félagsliða síðasta sumar. Fulham borgar 34 milljónir punda fyrir hann.

Palacios er 18 ára miðjumaður sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Real Madrid í janúar. Hann lék alls sjö leiki á síðustu leiktíð. Fulham borgar 8,5 milljónir punda fyrir hann.
Alvaro Arbeloa, nýr stjóri Fulham, þekkir þessa leikmenn vel þar sem hann var stjóri Real Madrid á síðustu leiktíð og þjálfaði þá í akademíu félagsins.