Fotbolti.net
02.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Ísland í dag - Víkingar fara upp á Akranes

Víkingar heimsækja Skagamenn

Víkingar heimsækja Skagamenn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Víkinga heimsækja ÍA í 17. umferð Bestu deildar karla á ELKEM-völlinn á Akranesi klukkan 14:00 í dag.
Skagamenn vonast til að fylgja eftir frábærum 5-1 sigri á Stjörnunni í síðustu umferð og komast almennilega á skrið.

Þeir gætu hitt á þreytta Víkinga sem léku erfiðan leik gegn Hapoel Beer Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.

Víkingar unnu Keflavík í síðustu umferð en höfðu þar áður tapað sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Þór á Akureyri.

Sigur myndi fleyta ÍA upp í fimmta sæti en Víkingar geta aukið forskot sitt á toppnum í níu stig.

Leikur dagsins:

Besta karla
14:00 ÍA-Víkingur R. (ELKEM völlurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2Fram17+1437
3KR16+2235
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV17-916
9KA16-815
10Stjarnan16-1215
11FH16-1113
12Þór16-2512
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.