02.08.26 - 15:00
Brynjar Ingi Erluson
Juventus hætt að eltast við Martínez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus hefur stimplað sig út úr baráttunni um argentínska landsliðsmarkvörðinn Emiliano Martínez, sem spilar með Aston Villa á Englandi.
Martínez var efstur á óskalista Juventus í markvarðarstöðuna en félagið bauð aðeins tæpar sjö milljónir evra í hann. Aston Villa hafnaði tilboðinu umsvifalaust.
Mikið ber á milli félaganna í verðmati á leikmanninum og segir Fabrizio Romano að Juventus hafi nú hætt við að reyna að fá Argentínumanninn.
Ítalska félagið hafði einnig augastað á Zion Suzuki, markverði Parma, en allt bendir til þess að hann sé á leið til Paris Saint-Germain.
Juventus hefur því beint sjónum sínum að Guglielmo Vicario hjá Tottenham. Hann vill yfirgefa Lundúnafélagið og fór ekki með liðinu í æfingaferð sumarsins.
Vicario hefur einnig verið orðaður við Napoli.