02.08.26 - 17:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lárus Orri: Alveg galið að Helgi skuli ekki dæma víti
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Víkingur skildu jöfn í Bestu deildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 Víkingur R.
„Mér fannst þetta spilast eins og ég bjóst við, þetta yrði baráttuleikur. Síðast þegar þeir komu hingað í bikarnum spiluðu þeir frekar einfaldan bolta, voru harðir í horn að taka og voru það líka í dag. Við vorum tilbúnir undir það núna," sagði Lárus Orri.
Skagamenn vildu fá vítaspyrnu þegar þeir töldu að Ögmundur Kristinsson hafi brotið á Böðvari Böðvarssyni þegar skammt var til leiksloka.
„Það er víti. Það er alveg galið að Helgi (Helgi Mikael Jónasson) skuli ekki dæma víti, óskiljanlegt. Maður sá það á Helga að hann vissi að hann hafi gert mistök. Svo kemur annað atvik þegar Gísli (Gísli Eyjólfsson) fær rauða spjaldið. Þar er Davíð (Davíð Örn Atlason) að spila leikinn vel, hann ögrar Gísla og hann fellur í gryfjuna og fer aðeins í Davíð sem hendir sér niður. Ég kenni Davíð ekkert um það, hann er bara að spila leikinn. Það er dómarinn sem á að stíga þarna inn í og segja mönnum að hætta þessu kjaftæði og gefa þeim gult spjald," sagði Lárus.
„Ef dómarinn stöðvar þetta ekki verður þetta alltaf svona. Það er algjörlega í höndum dómarans að stoppa svona vitleysu."
ÍA hefur náð í fjögur stig úr síðustu tveimur leikjum eftir fimm leikja taphrinu.
„Þetta var góður leikur af okkar hálfu. Ég er ánægður hvernig strákarnir spiluðu, ánægður með baráttuna í liðinu og menn voru að vinna fyrir hvorn annan. Þetta var framhald af leiknum á móti Stjörnunni. Vika er langur tími í fótbolta, við erum löngu búnir að gleyma þessum fimm leikjum sem þú ert að tala um. Við erum búnir að gera vel í síðustu tveimur leikjum og við vitum hverju við breyttum og bættum í og við ætlum að halda því áfram."