Fotbolti.net
02.08.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson

Messi sneri aftur með Inter Miami - Þorleifur allt í öllu

Þorleifur skoraði og lagði upp

Þorleifur skoraði og lagði upp

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lionel Messi sneri aftur úr fríi og spilaði síðari hálfleikinn er Inter Miami gerði 2-2 jafntefli við Columbus Crew í MLS-deildinni í nótt.
Messi fór hamförum á heimsmeistaramótinu þar sem hann skoraði átta mörk og lagði upp önnur fjögur þegar Argentína komst í úrslitaleikinn.

Argentínumönnum tókst ekki að verja heimsmeistaratitilinn en leikmenn fengu nokkurra vikna frí eftir mótið til að hlaða batteríin.

Messi sneri aftur í nótt og kom inn af bekknum hjá Inter Miami en Casemiro var í byrjunarliðinu. Luis Suarez skoraði og lagði upp í fyrri hálfleiknum á meðan Casemiro varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Miami-menn fengu á sig svekkjandi jöfnunarmark sex mínútum fyrir leikslok og þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli. Liðið er í öðru sæti Austurdeildarinnar með 38 stig.

Dagur Dan Þórhallsson lék allan leikinn með San Diego sem gerði 1-1 jafntefli við Minnesota United. San Diego er í 13. sæti Vesturdeildarinnar með 21 stig.

Þorleifur Úlfarsson var síðan í stuði með Loudoun United í 2-0 sigri á Hartford Athletic í USL-deildinni. Hann lagði upp fyrra markið fyrir Abdellatif Aboukoura í uppbótartíma fyrri hálfleiks og innsiglaði síðan sigurinn sjálfur þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Þorleifur er áttundi markahæsti leikmaður deildarinnar með átta mörk og hefur borið sóknarleik Loudoun United á herðum sér. Liðið situr í tíunda sæti Austurdeildarinnar með 18 stig og væri vafalaust í enn meiri vandræðum án hans.

Messi sneri aftur með Miami

Messi sneri aftur með Miami

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.