Fotbolti.net
02.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Mourinho vill losa sig við Tchouameni

Mourinho vill losa sig við Tchouameni
Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er sagður vilja losa sig við franska miðjumanninn Aurelien Tchouameni í sumar, en hann telur ekki vera pláss fyrir leikmanninn í hópnum.
Real Madrid er að leggja lokahönd á samkomulag við Manchester City um kaup á Rodri.

Rodri, sem var valinn besti fótboltamaður heims árið 2024, varð heimsmeistari með Spáni í sumar og er búist við að hann fari beint inn í byrjunarlið Madrídinga þegar hann hefur jafnað sig eftir bakaðgerð sem hann gekkst undir eftir HM.

Samkvæmt Diario mun Real Madrid setja Tchouameni á sölulista um leið og kaupin á Rodri verða staðfest. Jose Mourinho telur miðjumennina tvo of líka til að þeir geti leikið saman.

Þetta eru góð tíðindi fyrir Manchester United sem hefur haft augastað á Frakkanum.

Tchouameni er 26 ára gamall og gekk til liðs við Real Madrid frá Mónakó árið 2022. Liverpool reyndi einnig að fá hann á sínum tíma en Frakkinn valdi Madrídinga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.