Fotbolti.net
02.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Philogene biður um sölu

Philogene biður um sölu
Canon

Mynd: Ipswich Town

Enski vængmaðurinn Jaden Philogene hefur tjáð nýliðum Ipswich Town að hann vilji yfirgefa félagið í sumar.
Philogene hefur verið á mála hjá Ipswich í eitt og hálft ár eftir að hafa komið frá Aston Villa.

Þessi 24 ára gamli vængmaður kom að fimmtán mörkum þegar Ipswich tryggði sér sæti á ný í ensku úrvalsdeildinni í vor. Hann vill þó ekki taka slaginn með félaginu í deild þeirra bestu.

Samkvæmt Fabrizio Romano hefur Fiorentina áhuga á Philogene auk félaga á Spáni og í Þýskalandi. Flórensarliðið er talið leiða baráttuna í augnablikinu.

Philogene hefur farið fram á að verða seldur og tilkynnti Ipswich ákvörðun sína í upphafi undirbúningstímabilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.