Fotbolti.net
02.08.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

PSG leggur fram tilboð í Suzuki

PSG leggur fram tilboð í Suzuki
Canon

Mynd: EPA

PSG hefur lagt fram tilboð í japanska markvörðinn Zion Suzuki, markvörð Parma. Sky á Ítalíu greinir frá þessu.

Tilboðið hljómar upp á 33 milljónir evra.
Suzuki er 23 ára gamall japanskur landsliðsmaður. Hann aðalmarkvörður Japans á HM í sumar. Hann hefur alls spilað 28 leiki fyrir þjóð sína.

Hann gekk til liðs við Parma frá Urawa Red Diamonds árið 2024 og hefur spilað 59 leiki fyrir ítalska liðið.

Suzuki hefur verið eftrisóttur í sumar en Juventus hefur sýnt honum áhuga. Þá er hann á óskalista Aston Villa ef Emiliano Martínez yfirgefur félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.