02.08.26 - 17:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sölvi Geir: Erum að vonast eftir því besta í stað þess að taka ábyrgð
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur gerði jafntefli gegn ÍA á Akranesi í dag. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 2 Víkingur R.
„Ég held að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Svo sem ekki sáttur með hvernig leikurinn þróaðist. Ég hefði viljað að við hefðum náð meiri stjórn á leiknum. Það var fullmikið um aukaspyrnur út á velli, innköst eða langir boltar og slagur sem við getum alveg tekið þátt í. Mér fannst leikmenn leggja sig vel fram í þeim hluta leiksins en eitt stig niðurstaðan og ég er ekki sáttur með það."
Það var mikill hasar í leiknum en tvö rauð spjöld fóru á loft og Víkingur fékk vítaspyrnu.
„Ég nenni ekki að fara yfir alla þessa dóma en mér fannst hann ekki eiga góðan dag eins og gerist. Hann hefur sennilega verið að reyna sitt besta en átti ekki sinn besta dag, skítur skeður. Ég vil frekar líta í það sem við hefðum getað gert betur og hvernig við hefðum getað stjórna leiknum betur."
Sölvi Geir var svekktur með frammistöðu liðsins.
„Þetta eru klaufaleg mörk sem við fáum á okkur. Í staðin fyrir að hreinsa boltann látum við hann fara í gegn. Við erum seinir að skila okkur til baka í seinna markinu. Við erum svolítið að vonast eftir því besta í stað þess að taka ábyrgð hlaupunum og manninum sínum."