Fotbolti.net
02.08.26 - 16:07
Brynjar Ingi Erluson

Thelma Karen skoraði í stórsigri

Thelma Karen skoraði fjórða deildarmark sitt á tímabilinu

Thelma Karen skoraði fjórða deildarmark sitt á tímabilinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir skoraði eitt marka sænsku meistaranna í Hacken sem slátruðu Eskilstuna, 6-0, í úrvalsdeildinni í dag.
Häcken ætlaði sér greinilega að gera út um leikinn snemma og var komið í 2-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Liðið bætti við þremur mörkum snemma í síðari hálfleik. Thelma Karen skoraði fimmta markið á 53. mínútu en þetta var fjórða deildarmark hennar á tímabilinu.

Meistararnir bættu við sjötta markinu áður en yfir lauk. Thelma Karen lék allan leikinn fyrir Häcken og Heiða Ragney Viðarsdóttir gerði slíkt hið sama hjá Eskilstuna.

Häcken er í öðru sæti með 33 stig, einu stigi á eftir toppliði Hammarby. Eskilstuna er í sjöunda sæti með 17 stig.

Varalið Häcken var einnig í eldlínunni en tapaði 4-3 fyrir Sandviken í miklum spennuleik. Eyrún Embla Hjartardóttir var í byrjunarliðinu en Häcken glutraði niður 3-1 forystu.

Varaliðið situr á botni B-deildarinnar með aðeins eitt stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.