Fotbolti.net
02.08.26 - 12:01
Brynjar Ingi Erluson

UEFA hefur misst allt traust á Infantino sem nýtur þó stuðnings úr nokkrum áttum

Gianni Infantino fær stuðning frá Katar

Gianni Infantino fær stuðning frá Katar

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti alþjóðafótboltasambandsins FIFA, hefur verið mikið gagnrýndur síðustu daga fyrir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu, en það eru enn nokkrar þjóðir sem styðja hann heilshugar.
FIFA lofaði aðildarsamböndum sínum gulli og grænum skógum ef þau samþykktu að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum verkefnum sambandsins.

Hugmyndin féll illa í kramið hjá flestum aðildarsamböndum og neyddist Gianni Infantino til að draga hana til baka. Málið hefur veikt stöðu hans sem forseta FIFA og hafa nokkur sambönd kallað eftir afsögn hans.

Kosið verður til forseta FIFA á ný í mars á næsta ári og gætu allt að fjórir mótframbjóðendur stigið fram. Infantino nýtur þó enn stuðnings nokkurra sambanda og kemur kannski ekki á óvart hvaðan hann kemur.

Marokkó, Líbanon, Katar og Djibouti eru meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við Infantino.

Infantino hefur eytt miklum tíma í Katar og börn hans hafa gengið þar í skóla. Samband hans við landið hefur verið gott allt frá því heimsmeistaramótið fór þar fram árið 2022.

Katarska sambandið fagnar því að Infantino hafi dregið hugmyndina til baka en telur hann áfram rétta manninn til að leiða FIFA.

Yfirlýsing líbanska sambandsins var á svipuðum nótum. Þar kom fram að endurskoða þyrfti hugmyndina og að rétt hefði verið að draga hana til baka.

Infantino tengist Líbanon persónulega enda er eiginkona hans þaðan. Sjálfur fékk hann líbanskan ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum.

Marokkó hefur einnig lofað störf Infantino en hann hefur lagt mikla vinnu í að byggja upp gott samband við þarlend yfirvöld. Marokkó verður ein þeirra þjóða sem halda næsta heimsmeistaramót eftir fjögur ár.

Djibúti hefur sömuleiðis staðið þétt við bakið á Infantino undanfarin ár og þegar lýst því yfir að sambandið muni styðja endurkjör hans á næsta ári.

Tónninn er allt annar hjá UEFA og 55 aðildarsamböndum þess sem segjast hafa misst allt traust á forsetanum.

„Á næstu dögum og vikum mun UEFA vinna með aðildarsamböndum sínum og samböndum úr öðrum heimsálfum að því að komast til botns í því hvernig þetta gat gerst. Þá verður gerð áætlun til að tryggja að það endurtaki sig ekki.“

„Sú skoðun verður ítarleg og mikilvæg og enginn möguleiki útilokaður. Núverandi stjórn FIFA hefur ekki aðeins glatað trausti UEFA heldur einnig margra annarra innan fótboltafjölskyldunnar,“ segir í yfirlýsingu UEFA.
UEFA hefur misst allt traust á Infantino sem nýtur þó stuðnings úr nokkrum áttum
Canon

Mynd: EPA

UEFA hefur misst allt traust á Infantino sem nýtur þó stuðnings úr nokkrum áttum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.