02.09.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías Rafn hélt hreinu gegn meisturunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson var á sínum stað í rammanum þegar Midtjylland vann AGF 2-0 í dönsku deildinni í kvöld. Mikael Neville Anderson spilaði klukkutíma hjá AGF en Tómas Óli Kristjánsson var ekki í hópnum.
MIkael og Tómas voru að fá nýjan liðsfélaga í kvöld en Daníel Leó Grétarsson gekk til liðs við félagið.

Hann mun vonandi ná að hjálpa liðinu að rífa sig í gang en AGF, sem varð meistari á síðustu leiktíð, eer aðeins með þrjú stig eftir sex umferðir. Midtjylland er hins vegar á toppnum með 14 stig.
Amin Cosic var í byrjunarliði Viking annan leikinn í röð þegar liðið vann Brodd 3-1 í norska bikarnum.
Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson voru ekki með Gautaborg þegar liðið tryggði sér sæti í riðlakeppni sænska bikarsins eftir 5-0 sigur á Olympic.
Hörður Björgvin Magnússon spilaði klukkutíma þegar Atromitos vann 1-0 sigur á Panserraikos í fyrstu umferð gríska bikarsins.
Benoný Breki Andrésson spilaði síðasta stundafjórðunginn í 2-0 tapi Stockport gegn Luton í ensku C-deildinni. Stockport er í 9. sæti meeð sex stig eftir fjórar umferðir.
Þá spilaði Eyþór Martin Björgólfsson hálftíma í 3-0 sigri Motherwell gegn Dundee í skosku deildinni. Hann er að snúa aftur eftir langvarandi meiðsli en hann hefur spilað tvo leiki í röð. Motherwell er í 3. sæti með átta stig eftir fjórar umferðir.