02.09.26 - 00:32
Brynjar Ingi Erluson
Sancho á leið til Brasilíu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Jadon Sancho hefur fundið sér nýtt félag eftir mikla leit, en hann er að semja við brasilíska félagið Palmeiras. Þetta segir blaðamaðurinn Alfonso Partidor hjá Mundo Deportivo.
Sancho er 26 ára og hefur verið án félags síðan samningur hans við Manchester United rann út í sumar. Hann hefur átt erfitt uppdráttar allt frá því að United keypti hann árið 2021.
Englendingurinn sló í gegn með Borussia Dortmund á árunum 2017 til 2021 en náði aldrei að fylgja þeirri frammistöðu eftir hjá United. Hann var lánaður aftur til Dortmund og lék síðar sem lánsmaður með Chelsea og Aston Villa.
Sancho hefur leitað að nýju félagi í allt sumar og virðist nú loksins hafa fundið það. Hann er að ganga frá tveggja ára samningi við Palmeiras með möguleika á eins árs framlengingu.
Palmeiras er eitt sterkasta lið Brasilíu og hefur á undanförnum árum selt fjölda ungra leikmanna til stórliða í Evrópu. Þar má meðal annars nefna Estevao, Endrick, Allan, Vitor Reis og Luis Guilherme.