02.09.26 - 00:40
Brynjar Ingi Erluson
Stórt tap hjá Diljá sem fer í Evrópubikarinn - Hlín með sjö mörk í síðustu fjórum leikjum

Hlín hefur verið sjóðandi heit í síðustu leikjum

Mynd: Malmö

Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í Brann eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa tapað fyrir Austria Vín, 4-0, og samanlagt 5-2 í einvíginu.
Íslenska landsliðskonan kom inn af bekknum á 58. mínútu en þá var Brann 2-0 undir og komið í mikinn vanda. Norska liðið fékk á sig tvö mörk til viðbótar og féll því úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Evrópuævintýri Brann er þó ekki lokið því liðið fer niður í aðra umferð forkeppni Evrópubikarsins. Dregið verður í þá umferð á föstudag.
Hlín Eiríksdóttir var á skotskónum með Malmö sem vann sannfærandi 4-0 sigur gegn Trelleborg í sænsku bikarkeppninni.
Hlín kom inn á þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir og skoraði fjórða mark liðsins tólf mínútum síðar.
Malmö er þar með komið inn í riðlakeppni bikarsins sem fer fram í byrjun næsta árs.