Fotbolti.net
02.11.16 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Arnar Gunnlaugs: Guardiola væri til í sex mánuði til undirbúnings

Auglýsing
Arnar Gunnlaugs segir að Willum sé frábær mentor fyrir sinn þjálfaraferil.

Arnar Gunnlaugs segir að Willum sé frábær mentor fyrir sinn þjálfaraferil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Á fréttamannafundi sem KR hélt í gær var opinberað að sama þjálfarateymi og var seinni hluta síðasta tímabils muni halda áfram um stjórnartaumana. Willum Þór Þórsson verður áfram þjálfari og Arnar Gunnlaugsson hans aðstoðarmaður.
Eftir þjálfaraskipti um mitt sumar lá leiðin upp á við hjá KR-ingum sem náðu að klifra upp úr neðri hlutanum og enduðu í þriðja sæti, Evrópusæti.

„Ég er mjög stoltur af því að hafa fengið þetta starf. Það er frábært tækifæri fyrir mig að þróa minn þjálfaraferil að hafa Willum sem mentor (leiðbeinanda). Hann er reynslumikill, hefur unnið titla og verið í topp- og botnbaráttu,\" segir Arnar.

Sem leikmaður varð Arnar Íslandsmeistari með KR á sínum tíma og segir það frábært að geta verið tengdur félaginu áfram.

„Það er krafist mikils hérna og síðasta tímabil var eflaust súrsætt fyrir marga. Sem betur fer endaði þetta mjög vel og það er frábært að við fáum tækifæri til að byggja ofan á það. Það er klárlega hægt að gera mun betur.\"

Arnar segist fullur tilhlökkunar að takast á við langt undirbúningstímabil með hópnum.

„Sem leikmaður hataði maður hvað var langt í fyrsta leik en sem þjálfari er þetta algjör draumastaða. Ímyndið ykkur ef Wenger eða Guardiola fengju sex mánuði til að undirbúa liðið sitt. Það er tilhlökkun hjá okkur þjálfurunum að hafa þennan langa tíma til að búa til öflugt lið sem getur spilað nokkur leikkerfi og kann þau alveg í þaula,\" segir Arnar.

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan og þar talar Arnar meðal annars um hvað hann og Willum gerðu til að koma mönnum í gang á liðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.