Fotbolti.net
02.11.19 - 15:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eddie Howe: Svona úrslit geta haft mikil áhrif

Eddie Howe: Svona úrslit geta haft mikil áhrif
Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth sigraði í dag Manchester United, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni. Joshua King tryggði Bournemouth sigurinn með marki undir lok fyrri hálfleiks.

Eddie Howe, stjóri Bournemouth, var ánægður með sína menn í leikslok.

<i>„Í dag vorum við miklu líkari okkur sjálfum en við höfum verið undanfarið. Við vorum betri með boltann og vorum ákafari án hans."
„Við náðum að halda hreinu í þriðja sinn í röð sem ég er mjög ánægður með. Sóknarleikurinn var eins og hann á að vera og mér fannst við eiga sigurinn skilinn."

„Úrslit eins og þessi geta haft mikil áhrif á leiktíðina. Á undanförnum tímabilum höfum við náð að sigra bestu liðin og við vitum hvað svona úrslit geta gert fyrir okkur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.