mán 02. nóvember 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Leiknir R. sendir yfirlýsingu - Harma atburðarásina
Mynd: Haukur Gunnarsson
Leiknir R. hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið harmar þá atburðarás sem fór af stað eftir að fréttir bárust um ákvörðun KSÍ að Íslandsmóti yrði hætt og þar með ljóst að Leiknir myndi spila í efstu deild á næstu leiktíð.

Lögreglan ætlar að rannsaka fögnuð Vals og Leiknis á föstudag en bæði lið eru sökuð um að hafa brotið sóttvarnarreglur.

Í yfirlýsingu Leiknis kemur fram að ekki hafi verið um skipulagðan viðburð að ræða.

Yfirlýsing Leiknis
Stjórn Leiknis Reykjavík harmar þá atburðarás sem fór af stað eftir að fréttir bárust um ákvörðun KSÍ að Íslandsmóti yrði hætt og þar með ljóst að Leiknir myndi spila í efstu deild á næstu leiktíð.

Leikmenn í meistaraflokki liðsins voru að ljúka æfingu, þar sem þágildandi reglum varðandi æfingar var fylgt, þegar þetta var tilkynnt og viðurkennist að fagnaðarlætin fóru fram úr hófi miðað við þær reglur sem eru í gildi og þær sem voru í gildi á þeim tíma varðandi fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir.

Stjórnin vill undirstrika að ekki var um skipulagðan viðburð að ræða heldur spilaðist þetta svona í kjölfar fréttanna.

Félagið biðst afsökunar á þessari framgöngu og hvetur alla til að fara að fyrirmælum stjórnvalda og snúa bökum saman í baráttunni við faraldurinn.
Athugasemdir
banner
banner