Fotbolti.net
20.09.26 - 17:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Cunha bjargaði stigi fyrir Man Utd

England: Cunha bjargaði stigi fyrir Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Fulham 1 - 1 Manchester Utd
0-1 Lisandro Martinez ('63 , sjálfsmark)
0-2 Matheus Cunha ('89 )
Matheus Cunha bjargaði stigi fyrir Man Utd í lokin gegn Fulham í dag. Bæði lið fengu mjög góð færi til að skora í fyrri hálfleik en Senne Lammens og Bernd Leno voru í miklu stuði.

Josh King komst í gott færi eftir hálftíma leik en Lammens kom fætinum í boltann og varði vel. Stuttu áður átti Matheus Cunha skot fyrir utan teiginn sem fór af varnarmanni og sveif yfir Leno en endaði í stönginni.

Fulham náði forystunni eftir rúmlega klukkutíma leik. Calvin Bassey vann boltann af Cunha og Lammens varði boltann í Lisandro Martínez og þaðan fór boltinn í netið.

Bryan Mbeumo átti gott skot fyrir utan teiginn stuttu síðar en Leno varði frábærlega frá honum.

Man Utd náði að jafna metin þegar skammt var til loka leiksins. Cunha átti skot fyrir utan teiginn og boltinn breytti um stefnu af David Affengruber og endaði í netinu.

Martínez átti skot úr teignum í blálokin en Shea Charles bjargaði í horn. Patrick Dorgu skallaði framhjá eftir hornið og það var síðasta tækifæri leiksins.

Man Utd er í 12. sæti með fimm stig en Fulham er í 19. sæti með tvö stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Everton5+39
7Liverpool5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Aston Villa5-54
16Crystal Palace5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.