Fotbolti.net
02.11.26 - 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Newcastle og Everton: Fjórar breytingar

Byrjunarlið Newcastle og Everton: Fjórar breytingar
Canon

Mynd: EPA

Newcastle United og Everton eigast við í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og eru liðin að mætast í annað sinn á fjórum dögum.
Grealish enn í skammarkróknum
TENGT EFNI

Grealish enn í skammarkróknum

Everton hafði betur er liðin mættust í deildabikarnum í síðustu viku og leita lærlingar Matthias Jaissle hefndar í kvöld.

Jaissle gerir aðeins tvær breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði gegn Everton, þar sem nafnarnir Jacob Ramsey og Jacob Murphy eru færðir á bekkinn. Joelinton og Anthony Elanga koma inn í byrjunarliðið á meðan Yoane Wissa byrjar áfram á bekknum.

David Moyes gerir líka tvær breytingar á liði Everton og er Jack Grealish enn í skammarkróknum. Hayden Hackney og Tyler Dibling setjast á bekkinn og koma Jarrad Branthwaite og Harrison Armstrong inn í staðinn.

Það ríkir spenna fyrir þennan slag en eitt stig skilur að á milli liðanna í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur.

Newcastle: Hornicek, Dedic, Schar, Burn, Hall, Nico, Joelinton, Willock, Barnes, Elanga, Osula
Varamenn: Pope, Botman, Bamba, Wissa, Thiaw, Steur, Toure, Ramsey, Murphy

Everton: Pickford, O'Brien, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Garner, Armstrong, Dewsbury-Hall, Rohl, George, Barry
Varamenn: Travers, Maitland-Niles, Dibling, Keane, Johnson, Norgaard, Alcaraz, Hackney, Graham
Byrjunarlið Newcastle og Everton: Fjórar breytingar
Canon

Mynd: Everton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.