02.11.26 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Dorgu mættur aftur til æfinga

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er mikið af meiðslum innan herbúða Manchester United og hefur liðið byrjað nýtt tímabil illa bæði á Englandi og í Evrópu.

TENGT EFNI
Margir leikmenn Man Utd fjarverandi
Það voru þó jákvæðar fregnir að berast frá æfingasvæðinu þar sem vængbakvörðurinn fjölhæfi Patrick Dorgu er byrjaður að æfa með liðinu eftir að hafa meiðst með danska landsliðinu í lok september.
Dorgu hefur verið frá keppni í rúman mánuð og mun ekki koma við sögu gegn AS Roma þegar liðin mætast í Meistaradeildinni annað kvöld. Hann gæti þó tekið þátt í úrvalsdeildarleik gegn Aston Villa á Old Trafford næsta sunnudag.
Dorgu er 22 ára gamall og gaf tvær stoðsendingar í fimm leikjum með Man Utd áður en hann meiddist. Á síðustu leiktíð kom hann með beinum hætti að 8 mörkum í 26 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |