Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"

Hefur átt mjög gott tímabil með Fram í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk kallið í komandi leiki U21 liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki hefur tekið stórstígum framförum á rúmum tveimur árum. Viktor Bjarki og Freysi eru saman í U21 hópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred er teknískur Brasilíumaður sem hefur spilað lengi með Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur spilað undir stjórn Rúnars og Helga sig síðustu þrjú ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta eru frábæri gæjar, geðveikir í fótbolta og góðar manneskjur allir. (á myndinni er Ægir Jarl og fyrir aftan hann er Freysi)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred hefur hjálpað Freysa í að verða betri í að halda á lofti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vakti fyrst athygli þegar hann skoraði sigurmarkið gegn KR tímabilið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri náði að halda sæti sínu í 3. deild eftir erfitt tímabil framan af.

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson/Sindramyndir

Hefur átt mjög gott tímabil með Fram í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freysi er tvítugur miðjumaður Fram sem hefur nokkrum sinnum verið valinn í U21 landsliðið en á enn eftir að spila með liðinu. Hann verður 21 árs í desember og hefur verið í Fram frá því að hann kom frá uppeldisfélaginu Sindra. Hann lék síðast með Sindra 2023 í 2. deild en hafði þá verið einn vetur í Fram.

U21 landsliðshópurinn - Mjög öflugir sóknarmenn
„Þetta er ágætlega þétt dagskrá hjá okkur, höfum tekið tvær æfingar á dag og erum að undirbúa okkur vel fyrir leikina. Það er góð álagsstýring á leikmenn, passað upp á vera ekki að ofkeyra menn. Þetta er geðveikt, þú færð að æfa með bestu strákum á landinu á þínum aldri."
„Fyrir valið var ég nokkuð slakur, ef ég hefði ekki fengið kallið hefði ég skellt mér heim á Höfn og hitt mömmu og hundinn. Ég var ekkert að ofhugsa þetta, en frábært að fá kallið."
Úrslitaleikur gegn Sviss
Framundan hjá U21 landsliðinu eru leikir gegn Frakkland, Sviss og Færeyjum. Með jákvæðum úrslitum er möguleiki á því að spila um sæti á EM á næsta ári. Stöðuna í riðlinum má sjá neðst í greininni.
„Það er ótrúlegt að vera fara spila á móti Frökkunum, leikmenn í Man U og öðrum liðum í ensku úrvalsdeildinni. Mín upplifun er meiri spenna að spila á móti þessum leikmönnum heldur en einhver hræðsla."
„Auðvitað er einn leikur í einu, fókusinn á því, en það er samt ljóst að okkar mikilvægasti leikur verður á móti Sviss. Það er leikur sem við verðum að vinna. Við ætlum að sjálfsögðu að gera það sem við getum á móti Frökkum á föstudaginn, þeir eru með sturlað lið og það væri mjög sterkt að sækja jafntefli eða í draumaheimi ná sigri - það væri æðislegt. Það er ljóst að við þurfum að vinna Sviss ef við ætlum að eiga möguleika á einhverju."
Hefði ekki trúað því þremur árum fyrr
Hvernig var að fá kallið fyrst í U21 í fyrra?
„Ég hefði ekki trúað því þremur árum fyrr. Þá var ég að spila með Mána, varaliði Sindra. Ég hafði aldrei ímyndað mér að geta verið kominn í þessa stöðu, en það er alltaf frábært að fá kallið og sjá hvar maður er staddur miðað við stráka á sínum aldri."
„Ég vona að ég fái einhverjar mínútur, annað væri smá leiðinlegt, en það er mikið stolt að fá að vera með liðinu og ef ég spila ekki þá spila ég ekki - en vonandi fæ ég mínútur."
Viktor á þetta allt skilið
Í U21 landsliðinu er fyrrum liðsfélagi Freysa hjá Fram, Viktor Bjarki Daðason, sem hefur spilað með FCK frá því að hann fór frá Fram fyrir rúmum tveimur árum síðan.
„Maður sér hvað hann hefur bætt sig mikið, bæði í styrk og leikskilning. Hann var ótrúlega góður þegar hann var í Fram og ég spilaði bæði með honum í 2. flokki og meistaraflokki. Hann fór svo í FCK og er búinn að gera þetta ótrúlega vel, á þetta allt skilið. Það að skora á móti Barcelona og Dortmund, þetta er ótrúlegt. Hann er magnaður."
„Hann er mjög flottur karakter, hógvær og góð manneskja fyrst og fremst."
Eitt eða tvö mörk gegn Keflavík?
Freyr var svo spurður út í tímabilið með Fram. Hann var skráður með tvö mörk á sumum stöðum gegn Keflavík en annars staðar einungis eitt. Hvað er hægt að segja um það?
„Ég segi væntanlega að ég eigi bæði mörkin," segir Freysi og hlær.
„Annað markið var helvíti tæpt en ég vil meina að ég hafi potað honum inn. Robbi (Róbert Hauksson) fór í einhvern kollhnís og fékk boltann í sig. Ég svo potaði honum inn. Þetta var mjög skrítið og við hlógum að þessu eftir þetta. Mér var alveg sama (hver fengi markið), mark er mark bara."
Heilt yfir ánægður en á fullt inni
Freysi hefur skorað sex mörk í deildinni (mögulega sjö) og lagt upp tvö í 20 byrjunarliðsleikjum. Ertu sáttur með þitt hlutverk og spilamennskuna?
„Já, heilt yfir. Ég horfi samt í það að ég hefði getað gert betur; í einhverjum leikjum hefði ég viljað spila betur og veit alveg að ég get það. Ég á fullt inni og það er bara að ná að sýna það."
Fred hjálpað mikið með tæknina
Á miðsvæðinu hefur Freysi mest spilað með Fred, Ægi Jarli og Simon Tibbling. Hvernig er að spila með þeim?
„Það er frábært, það gefur manni mikið frelsi og öryggi á miðjunni. Þetta eru frábæri gæjar, geðveikir í fótbolta og góðar manneskjur allir."
Er einhver einn frekar en annar sem þú hefur lært meira af en öðrum á árunum í Fram?
„Ætli það sé ekki Fred. Hann hefur kennt mér mikið, t.d. varðandi að halda á lofti, hann hefur verið að kenna mér brasilíska takta. Ég sver það, ég er orðinn miklu betri í að halda á lofti. Fred er snillingur. Fyrir æfingar höfum við verið að halda á lofti, hann er með einhvern brasilískan strandbolta, við höfum verið að sparka á milli og svo eftir æfingar erum við að skjóta og taka fyrirgjafir."
Vildi vera hjá Fram og framlengdi
Freysi ákvað að framlengja samning sinn við Fram í sumar. Var það flókin ákvörðun?
„Ég sagðist vilja spila við Fram og svo loksins náðist samkomulag og þá varð þetta engin spurning."
Þú segir loksins, tók þetta smá tíma?
„Smá já, var aðeins fram og til baka en á endanum voru allir sáttir."
Ef tækifærið kemur, þá kemur það
Hvernig sér framhaldið við þér, margir horfa í aldurinn og spilamennskuna og út frá því möguleikann á því að fara út. Ertu að horfa í þann möguleika?
„Ég tek einn dag í einu og reyni að bæta mig, ég fókusa bara á næsta leik. Ef það kemur áhugi og möguleiki á að fara út þá kemur það bara, ef ekki, þá er það bara þannig. Ég mun alltaf halda áfram."
Í „versta falli" ertu áfram í einu af besta liðinu á Íslandi.
„Sem er bara mjög fínt, ég elska að vera í Fram og finnst það geðveikt."
Hefðu alltaf tekið því að vera í þessari stöðu
Fram er í þriðja sæti, eruð þið sáttir?
„Fyrir tímabilið hefðum við alltaf tekið því að vera í 3. sæti á þessum tímapunkti. En einhvern veginn eins og tímabilið þróaðist, það var möguleiki að berjast um fyrsta sætið, og við erum því smá svekktir að vera ekki á þeim stað. Núna er einhvern veginn að enda í 2. sæti. Það er skýrt markmið úr þessu."
Lærir eitthvað nýtt á hverjum degi
Hvernig er að spila undir Rúnari Kristinssyni og Helga Sigurðssyni?
„Það er bara geðveikt, maður lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi, Rúnar er með endalausa reynslu, veit allt. Ég hef sjaldan ef nokkurn tímann lært jafnmikið í fótbolta og á þessum þremur árum. Rúnar kemur með frábæra punkta og maður verður betri leikmaður."
Hæstánægður að Sindri hélt sér uppi
Freysi sagði að hann hefiði farið á Höfn ef hann hefði ekki fengið kallið í U21 landsliðið. Fylgdistu með Sindra í sumar?
„Já, ég gerði það. Sindri girti sig í brók eftir erfiða byrjun og það hafðist að halda liðinu uppi. Liðið var ósigrað í síðustu sjö leikjunum. Þeir náðu að snúa þessu við og ég er ekkert eðlilega ánægður með það. Ég vildi ekki fá fall, það hefði verið leiðinlegt."
„Ég kíkti á nokkra leiki í bænum og kíkti á Höfn líka, sá einn leik þar. Það var leikur gegn KF snemma á tímabilinu, dramatík í lokin þar sem Óðinn Pálmason skoraði og jafnaði. Ég fagnaði eins mikið og ég gat, hljóp í hringi þarna."
Nennti ekki að fara í strætó í Hafnarfjörðinn
Þegar Freyr fór í Fram stóð valið á milli Fram og FH.
„Ég þekkti þjálfarann hjá Fram, hann þjálfaði mig í 4. flokki hjá Sindra. Ég var að fara í menntaskóla í bænum. Ég flutti í Úlfarsárdal og það var stutt á æfingar í Fram. Það var líka tenging við FH, en ég valdi á endanum Fram. Ég nennti ekki að fara taka strætó í Hafnarfjörðinn. Ég sé alls ekki eftir því í dag," segir Freysi sem er mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum Fram.

Fékk kallið í komandi leiki U21 liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Bjarki hefur tekið stórstígum framförum á rúmum tveimur árum. Viktor Bjarki og Freysi eru saman í U21 hópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred er teknískur Brasilíumaður sem hefur spilað lengi með Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur spilað undir stjórn Rúnars og Helga sig síðustu þrjú ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta eru frábæri gæjar, geðveikir í fótbolta og góðar manneskjur allir. (á myndinni er Ægir Jarl og fyrir aftan hann er Freysi)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred hefur hjálpað Freysa í að verða betri í að halda á lofti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vakti fyrst athygli þegar hann skoraði sigurmarkið gegn KR tímabilið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri náði að halda sæti sínu í 3. deild eftir erfitt tímabil framan af.

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson/Sindramyndir
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frakkland | 6 | +17 | 16 |
| 2 | Sviss | 7 | +5 | 14 |
| 3 | Ísland | 7 | +5 | 11 |
| 4 | Færeyjar | 7 | -7 | 9 |
| 5 | Lúxemborg | 6 | -7 | 4 |
| 6 | Eistland | 7 | -13 | 2 |

