Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. desember 2019 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Liverpool og Everton mætast
Mynd: Getty Images
Búið er að draga í þriðju umferð enska FA bikarsins sem verður leikin frá 3-6. janúar. Þetta er umferðin sem úrvalsdeildarfélög koma inn í keppnina.

Drátturinn fór fram á Etihad leikvanginum og fá ríkjandi meistarar Manchester City, sem unnu úrslitaleikinn gegn Watford 6-0 í vor, heimaleik gegn D-deildarliði Port Vale. Watford fær Tranmere Rovers í heimsókn úr C-deildinni.

Stærsti leikur umferðarinnar er vafalaust slagurinn um Bítlaborgina þar sem gríðarlega sterkt lið Liverpool tekur á móti Gylfa Þóri Sigurðssyni og félögum í Everton. Wolves fær þá Manchester United í heimsókn í öðrum úrvalsdeildarslag umferðarinnar.

Annar stórleikur er á Emirates þar sem Arsenal tekur á móti spennandi liði Leeds United, sem trónir á toppi Championship deildarinnar með 40 stig eftir 19 umferðir.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka á móti Peterborough United á meðan Jón Daði Böðvarsson og liðsfélagar hans í Millwall eiga leik við Newport County sem reyndist spútnik lið bikarsins í fyrra. D-deildarliðið sló meðal annars Tottenham, Leicester og Middlesbrough úr leik.

Tottenham heimsækir Middlesbrough, Chelsea tekur á móti Nottingham Forest og Leicester City fær Wigan í heimsókn. Þá á Aston Villa útileik við Fulham á meðan Southampton tekur á móti Huddersfield.

3. umferð 3-6. janúar 2020:
LIVERPOOL v EVERTON
WOLVES v MANCHESTER UNITED
ARSENAL v LEEDS
MAN CITY v PORT VALE
MIDDLESBROUGH v TOTTENHAM
CHELSEA v NOTTINGHAM FOREST
LEICESTER CITY VS WIGAN ATHLETIC
FULHAM VS ASTON VILLA
ROCHDALE EÐA BOSTON UTD v NEWCASTLE UTD
WATFORD v TRANMERE ROVERS
SHEFFIELD UTD v AFC FYLDE
BURNLEY v PETERBOROUGH UNITED
GILLINGHAM v WEST HAM
CRYSTAL PALACE v DERBY COUNTY
PRESTON NORTH END v NORWICH CITY
BOURNEMOUTH v LUTON TOWN
SOUTHAMPTON v HUDDERSFIELD
MILLWALL v NEWPORT COUNTY
BIRMINGHAM CITY v BLACKBURN ROVERS
BURTON ALBION v NORTHAMPTON TOWN
FLEETWOOD TOWN v PORTSMOUTH
BRENTFORD v STOKE CITY
SOLIHULL MOORS EÐA ROTHERHAM v HULL CITY
READING v BLACKPOOL
OXFORD V EXETER EÐA HARTLEPOOL
CARDIFF v FOREST GREEN EÐA CARLISLE
EASTLEIGH EÐA CREWE v BARNSLEY
BRISTOL CITY v SHREWSBURY TOWN
OXFORD V EXETER EÐA HARTLEPOOL
CHARLTON v WEST BROM
QPR VS SWANSEA CITY
Athugasemdir
banner
banner