Fotbolti.net
12.09.26 - 19:33
Ívan Guðjón Baldursson

Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag

Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur Andersen Willumsson og Stefán Ingi Sigurðarson voru gríðarlega mikilvægir er þeir mættust í Íslendingaslag í efstu deild hollenska boltans í dag.
Heimamenn í G.A. Eagles voru sterkari aðilinn allan timann og gerði Brynjólfur frábærlega að ná forystunni fyrir Groningen í fyrri hálfleik.

Alfons Sampsted lék fyrstu klukkustundina í liði heimamanna sem voru undir allt þar til á 82. mínútu, þegar Stefán Ingi lagði jöfnunarmarkið upp svo lokatölur urðu 1-1.

G.A. Eagles eiga 9 stig eftir 6 umferðir, einu stigi meira heldur en Groningen.

Kristian Nökkvi Hlynsson var þá ekki með í sigri Twente gegn Den Haag. Twente er í þriðja sæti með 13 stig.

Í efstu deild sænska boltans lék Hjörtur Hermannsson allan leikinn í hjarta varnarinnar í 2-1 sigri Gautaborgar gegn botnliði Halmstad. Kolbeinn Þórðarson kom inn af bekknum og er Göteborg með 29 stig eftir 21 umferð, þetta var þriðji sigur liðsins í röð.

Í C-deildinni varði Sindri Kristinn Ólafsson mark Vasalund í 2-1 tapi gegn Karlstad. Vasalund er í fallbaráttu með 23 stig eftir 21 umferð og hefur verið í markmannsvandræðum á tímabilinu. Sindri er búinn að spila sex af síðustu sjö leikjum liðsins og getur vonandi leyst vandamálin á milli stanganna.

Í norska boltanum skoruðu lærlingar Freys Alexanderssonar í liði Rosenborgar fimm mörk í spennandi leik gegn Tromsö. Rosenborg er með 30 stig eftir 20 umferðir, fimm stigum á eftir Tromsö í Evrópubaráttunni.

Í næstefstu deild í Danmörku lék nítján ára Daníel Ingi Jóhannesson allan leikinn í markalausu jafntefli hjá Kolding gegn Fredericia. Kolding er með 7 stig eftir 8 umferðir.

Í efstu deild þýska boltans kom Ísak Bergmann Jóhannesson inn af bekknum í 1-1 hjá Köln gegn Werder Bremen. Köln var einu marki yfir þegar Ísaki var skipt inn, en skömmu síðar jöfnuðu gestirnir metin.

Köln er með fjögur stig eftir þrjár umferðir og sér Thijs Dallinga eflaust eftir því að hafa klúðrað vítaspyrnu á 8. mínútu.

Á Ítalíu lék Kristófer Jónsson allan leikinn í jafntefli hjá Reggiana gegn Guidonia í C-deildinni. Reggiana er með 8 stig eftir 4 umferðir.

Að lokum fékk Benoný Breki Andrésson að spila síðustu mínúturnar í 3-4 tapi Stockport County á heimavelli gegn Leicester City í þriðju efstu deild á Englandi.

Stockport er með 9 stig eftir 6 umferðir, einu stigi meira heldur en Leicester sem vann ensku úrvalsdeildina fyrir tíu árum síðan.

G.A. Eagles 1 - 1 Groningen
0-1 Brynjólfur Andersen Willumsson ('32)
1-1 Sören Tengstedt ('82)

Twente 2 - 0 Den Haag

Göteborg 2 - 1 Halmstad

Karlstad 2 - 1 Vasalund

Rosenborg 5 - 3 Tromsö

Kolding 0 - 0 Fredericia

Köln 1 - 1 Werder Bremen

Guidonia 1 - 1 Reggiana

Stockport County 3 - 4 Leicester
Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag
Canon

Mynd: EPA

Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag
Canon

Mynd: Vasalund

Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag
Canon

Mynd: EPA

Brynjólfur og Stefán mikilvægir í Íslendingaslag
Canon

Mynd: Reggiana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.