Fotbolti.net
13.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu stórfurðulega hornspyrnutaktík Frakka

Sjáðu stórfurðulega hornspyrnutaktík Frakka
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Franska U20 ára landslið kvenna lagði Gana að velli í riðlakeppni HM og skoruðu þær frönsku annað mark leiksins eftir áhugaverða hornspyrnu.
Justine Rouquet, leikmaður Montpellier, skoraði eftir furðulega hornspyrnutaktík þar sem fimm liðsfélagar hennar hlupu í hringi áður en hornspyrnan var tekin.

Ganverska vörnin var mjög undrandi á þessari taktík sem virtist slá leikmenn liðsins út af laginu. Þær ganversku sofnuðu á verðinum og nýtti Rouquet tækifærið til að skora.

Staðan var 0-1 þegar atvikið átti sér stað og stóðu Frakkar að lokum uppi sem sigurvegarar, 0-4.

Frakkland mætir Kanada í 16-liða úrslitum, en Gana er úr leik eftir að hafa nælt í þrjú stig í riðlakeppninni.

Sjáðu hornspyrnuna
Sjáðu stórfurðulega hornspyrnutaktík Frakka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.