12.09.26 - 22:04
Ívan Guðjón Baldursson
De Zerbi: Byrjuðum tímabilið alltof seint

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham svaraði spurningum eftir markalaust jafntefli á heimavelli gegn Everton í dag.

TENGT EFNI
England: Tottenham getur ekki skorað mark
Tottenham er með tvö stig eftir fjóra fyrstu leiki úrvalsdeildartímabilsins og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark.
„Við byrjuðum þetta tímabil alltof seint útaf ýmsum ástæðum þar sem HM, meiðsli og félagaskipti höfðu öll áhrif. Við erum ekki komnir á réttan stað líkamlega sem liðsheild þar sem ég hef bara haft tvær vikur til að vinna með nákvæmlega þessum leikmannahópi. Við erum ekki langt frá því að komast í rétt form og við sýndum það á fyrsta hálftímanum í dag þar sem við vorum talsvert sterkara liðið og komumst í mikið af góðum stöðum," sagði De Zerbi.
„Okkur tókst ekki að skora á fyrsta hálftímanum og það hefur haft andleg áhrif á strákana. Ef við sýnum sömu frammistöðu í 90 mínútur og við gerðum fyrstu 30 mínúturnar í dag þá munum við vinna mikið af leikjum. Það er augljóst að við verðum að bæta okkur á síðasta þriðjungnum. Það vantar meiri gæði í lokaákvörðunina og lokasendinguna og við þurfum að enda fleiri sóknir á marktilraunum, sérstaklega þegar menn eru með tíma og pláss til að láta vaða. Við þurfum að vinna í andlegu þáttunum.
„Strákarnir eru að leggja sig alla fram og ég er viss um að við séum á réttri braut. Það er erfitt að útskýra þetta og samþykkja fjóra leiki án þess að skora mark. Við erum miður okkar fyrir hönd stuðningsmanna, þeir eiga meira skilið.
„Markmiðið okkar er að lengja þessar 30 mínútur sem við spiluðum vel í dag í 90 mínútur."