12.09.26 - 23:11
Ívan Guðjón Baldursson
32 ár síðan Forest vann á Villa Park

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nottingham Forest heimsótti Villa Park í ensku úrvalsdeildinni í dag og vann langþráðan sigur á þeim erfiða útivelli, eftir meira en þriggja áratuga bið.

TENGT EFNI
England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield
Oliver Glasner stýrði Forest til fyrsta sigursins á deildartímabilinu þegar liðin mættust í dag. Forest er því með fimm stig eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins, en Villa situr eftir með eitt stig.
Igor Jesus skoraði sigurmark leiksins til þess að tryggja sögulegan sigur í fyrsta sinn síðan október 1994, þegar Forest vann 0-2 á Villa Park. Það tímabilið endaði Forest í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar á meðan Aston Villa endaði þremur stigum frá fallsæti.
Síðan þá hafa liðið spilað ellefu leiki á Villa Park og aldrei hefur Forest tekist að sigra. Þeir komust nálægt því nokkrum sinnum og gerðu liðin meðal annars stórskemmtilegt 5-5 jafntefli fyrir átta árum síðan. Í þeim leik skoraði Tammy Abraham fernu fyrir heimamenn og setti Matty Cash, sem er mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Villa í dag, eitt marka Forest.