12.09.26 - 21:29
Ívan Guðjón Baldursson
Andrea Rut skoraði í góðum sigri

Mynd: Inter

Mynd: Anderlecht

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: NEC Nijmegen

Mynd: Inter

Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem leika erlendis þar sem Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í byrjunarliði Inter sem tapaði á útivelli í stórleik gegn Juventus.
Leikurinn var nokkuð jafn og réðist af óheppilegu sjálfsmarki sem Samantha van Diemen setti framhjá Cecilíu á 34. mínútu.
Leikurinn var annars jafn og lokaður og urðu lokatölur 1-0. Liðin áttust við í undanúrslitaleik Serie A bikarsins og fer Juventus því í úrslitin, þar sem liðið getur annað hvort mætt Sassuolo eða ríkjandi Ítalíumeisturum Roma. Fyrsta umferð nýs deildartímabils hefst í lok september.
Í efstu deild í Belgíu var Andrea Rut Bjarnadóttir í byrjunarliði Anderlecht og skoraði hún fyrra markið í 0-2 sigri gegn Gent. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom inn af bekknum á 70. mínútu og er Anderlecht með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.
Í efstu deild í Svíþjóð kom Sigdís Eva Bárðardóttir við sögu í 2-0 tapi hjá Norrköping. Hún fékk aðeins að spila lokamínúturnar og gat því lítið gert til að bjarga liðsfélögunum. Norrköping er í fallsæti með 13 stig eftir 18 umferðir.
Í Danmörku var Hafrún Rakel Halldórsdóttir ekki í hóp í þægilegum sigri hjá Bröndby gegn OB. Bröndby er með 11 stig eftir 7 umferðir.
Í karlaboltanum var Sigurður Bjartur Hallsson ónotaður varamaður í svekkjandi tapi hjá AD Merida í þriðju efstu deild á Spáni. Merida tapaði 3-4 eftir að hafa náð 2-0 og svo 3-2 forystu. Liðið er aðeins með þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Willum Þór Willumsson var ónotaður varamaður í 3-0 tapi NEC Nijmegen í efstu deild í Hollandi. Liðið er aðeins komið með 7 stig eftir 6 umferðir eftir að hafa reynst spútnik lið síðustu leiktíðar.
Gísli Gottskálk Þórðarson var að lokum ekki í hóp í naumum sigri St. Pauli gegn Wolfsburg í næstefstu deild í Þýskalandi. St. Pauli er með 6 stig eftir 5 umferðir.
Gent 0 - 2 Anderlecht
0-1 Andrea Rut Bjarnadóttir ('25)
0-2 Shari Van Belle ('58)
0-2 Misnotað víti, Anderlecht ('63)
Juventus 1 - 0 Inter
Brommapojkarna 2 - 0 Norrköping
Odense 0 - 4 Bröndby
Merida 3 - 4 Mirandes
Cambuur 3 - 0 Nijmegen
St. Pauli 1 - 0 Wolfsburg