12.09.26 - 20:01
Ívan Guðjón Baldursson
Emery: Augljóst rautt spjald

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Unai Emery þjálfari Aston Villa var ósáttur með frammistöðu lærlinga sinna í seinni hálfleik í tapi á heimavelli gegn Nottingham Forest í dag.
Staðan var markalaus í leikhlé en Liam Delap og Igor Jesus skoruðu mörk gestanna frá Nottingham í 1-2 tapi. Alysson gerði eina mark heimamanna.
„Við vorum góðir í fyrri hálfleik og fylgdum skipulaginu eftir. Við náðum ekki að skora en við spiluðum okkar leik og vorum sterkara liðið á vellinum," sagði Emery. „Ég veit ekki af hverju, en seinni hálfleikurinn var allt öðruvísi. Mér líður eins og vendipunktur leiksins hafi verið þegar Ian Maatsen meiddist. Þetta var mjög ljót tækling og að mínu mati hefði VAR átt að skerast í leikinn. Ef ég væri dómari þá myndi ég gefa rautt spjald fyrir þetta.
„Þetta var augljóst rautt spjald, mér fannst það bæði þegar ég sá það á hliðarlínunni og í endursýningu í sjónvarpi. Við vorum góðir í fyrri hálfleik en ekki í seinni hálfleik og það er eitthvað sem við verðum að laga."
Aston Villa er aðeins komið með eitt stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju úrvalsdeildartímabili. Markið sem Alysson skoraði í dag er fyrsta markið sem liðið skorar.
Zion Suzuki varði mark Villa gegn Forest en tókst ekki að bjarga stigi.
„Það er erfitt að samþykkja þetta. Yfir heildina litið vorum við betra liðið á vellinum en seinni hálfleikurinn var ekki nægilega góður. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur."

TENGT EFNI
England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield

Mynd: EPA

Mynd: EPA