Fotbolti.net
12.09.26 - 22:34
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta gagnrýndi ákvörðun dómarateymisins harkalega eftir lokaflautið í 0-2 sigri Englandsmeistara Arsenal gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur
TENGT EFNI

Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur

Arteta segir að John Brooks dómari hafi aldrei átt að dæma vítaspyrnu og skilur ekki hvernig VAR-teymið staðfesti ákvörðunina.

„Ég er mjög áhyggjufullur og sorgmæddur útaf þessari ákvörðun. Eruð þið hissa á þessari ákvörðun? Nei? Allt í lagi. Þetta er júdóbragð sem andstæðingurinn notar, Ezri (Konsa) gerir ekki neitt. Horfið bara á þetta aftur, það er mikið af myndavélum á vellinum og við erum með VAR. Við verðum að taka ábyrgð á að vernda íþróttina. Í dag hefði þessi ranga ákvörðun getað kostað okkur sigurinn og mögulega meira. Tap í dag hefði komið niður á stemningunni í hópnum og stigin sem tapast gætu ráðið úrslitum í titilbaráttunni. Þetta er mjög alvarlegt mál," sagði Arteta.

„Ég elskaði markvörsluna hans David (Raya) og viðbrögð liðsins, þetta vorum við gegn heiminum. En svona á ekki að gerast í fótbolta, þetta er ekki sanngjarnt og það gerir mig mjög sorgmæddan. Tæknin á að koma í veg fyrir þetta. Ég er að segja þetta hérna opinskátt í viðtali til að vernda leikinn. Ég er ekki bara að segja þetta til að vernda Arsenal, svona ákvarðanir mega ekki sjást á þessu gæðastigi.

„Við ættum ekki að tala um markvörsluna hans David, við ættum að tala um það sem gerðist fyrir það."


England: Meistarasigur í Sunderland
TENGT EFNI

England: Meistarasigur í Sunderland

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.