Fotbolti.net
12.09.26 - 20:15
Ívan Guðjón Baldursson

Martinelli og Watkins með sýningu - Ronaldo slakur

Martinelli og Watkins með sýningu - Ronaldo slakur
Canon

Mynd: Al Hilal

Gabriel Martinelli var ásamt Ollie Watkins í byrjunarliði Al-Hilal sem heimsótti Al-Taawon í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag og setti þessi fyrrum kantmaður Arsenal þrennu í stórsigri.
Watkins skoraði tvö mörk og lagði tvö upp í 0-6 sigri. Lærlingar Simone Inzaghi eru á toppi deildarinnar með 18 stig eftir 7 umferðir, einu stigi fyrir ofan Al-Ittihad og tveimur stigum fyrir ofan ríkjandi meistara í Al-Nassr.

Cristiano Ronaldo og Joao Félix léku allan leikinn í meistaraliði Al-Nassr í dag en þeim tókst ekki að leggja Al-Khaleej að velli, lokatölur 1-1. Ronaldo var slakur í leiknum og klúðraði góðum færum.

Al-Shabab og Al-Fayha gerðu að lokum markalaust jafntefli. Josh Brownhill og Yannick Carrasco voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Shabab sem er enn án sigurs, með fjögur stig eftir sjö umferðir.

Al-Taawon 0 - 6 Al-Hilal
0-1 Ollie Watkins ('9)
0-2 Gabriel Martinelli ('18)
0-3 Gabriel Martinelli ('43)
0-4 Gabriel Martinelli ('50)
0-5 Ollie Watkins ('53)
0-6 Sultan Mandash ('75)

Al-Khaleej 1 - 1 Al-Nassr

Al-Shabab 0 - 0 Al-Fayha
Martinelli og Watkins með sýningu - Ronaldo slakur
Canon

Mynd: Al Hilal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.