Katie Cousins: Hef alltaf viljað hjálpað liðinu að vinna eitthvað í fyrsta skipti

Katie Cousins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Katie Cousins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þróttur er Mjólkurbikarmeistari kvenna 2026 eftir frábæran sigur á Grindavík/Njarðvík í úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli í dag.
„Tilfinningin er mjög góð og þetta er í fyrsta sinn fyrir Þrótt svo það er frábært" sagði Katie Cousins miðjumaður Þróttar eftir sigurinn í dag.
„Það er alltaf erfitt að skipta frá gervigrasi yfir á gras svo mér fannst það svolítið svalt en ég sagði við liðið fyrir leik að við myndum gera hvað sem við þyrftum til þess að vinna þennan leik og það er það sem við gerðum í dag"
Katie Cousins kom til Þróttar í sumar aftur en hún hefur átt nokkur vistaskipti til Þróttar síðustu ár og skipti þessi titill hana miklu máli.
„Hann hefur mikla þýðingu. Ég hef verið hérna í fjögur tímabil núna og ég hef alltaf viljað hjálpað liðinu að vinna eitthvað í fyrsta skipti svo ég er mjög spennt"
„Það eina sem ég hugsaði um var að vinna og það er það sem við gerðum svo ég er mjög ánægð með það"
Þessi sigur mun gefa Þrótti mikið sjálfstraust fyrir restina af tímabilinu.
„Þetta er risa sigur fyrir okkur og gefur okkur helling farandi inn í næstu verkefni og við erum tilbúnar til þess að halda áfram" sagði Katie Cousins.
