Fotbolti.net
13.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi skoraði í toppslagnum - Surridge bjargaði stigi

Messi skoraði í toppslagnum - Surridge bjargaði stigi
Canon

Mynd: MLS

Inter Miami 2 - 2 Nashville SC
0-1 Sam Surridge ('4)
1-1 Reed Baker-Whiting ('19, sjálfsmark)
2-1 Lionel Messi ('62)
2-2 Sam Surridge ('91)
39 ára gamall Lionel Messi var á sínum stað í byrjunarliði Inter Miami sem gerði jafntefli við Nashville SC í toppslag austurhluta MLS deildarinnar í nótt.

Sam Surridge, fyrrum leikmaður Nottingham Forest og Bournemouth, kom gestunum frá Nashville yfir snemma leiks en heimamenn jöfnuðu þegar Reed Baker-Whiting varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net stundarfjórðungi síðar.

Staðan hélst jöfn 1-1 þar til Messi náði forystunni á 62. mínútu eftir undirbúning frá samlanda sínum Rodrigo De Paul. Leikurinn var nokkuð jafn þar sem bæði lið fengu góð færi til að bæta mörkum við.

Inter leiddi 2-1 allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma, þegar Surridge var mættur aftur til að bjarga stigi. Hann er kominn með 15 mörk í 19 deildarleikjum það sem af er tímabils. Til samanburðar er Messi með 19 mörk og 11 stoðsendingar í 22 leikjum.

Nashville trónir þó á toppi austurhlutans með 54 stig eftir 25 umferðir - níu stigum meira heldur en Inter sem situr í öðru sæti. Liðin eru bæði á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.