Fotbolti.net
12.09.26 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson

Alonso: Vil frekar sigra en að skemmta áhorfendum

Alonso: Vil frekar sigra en að skemmta áhorfendum
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso þjálfari Chelsea var vonsvikinn eftir 2-2 jafntefli gegn nýliðum Hull City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield
TENGT EFNI

England: Varnarleikur Chelsea til vandræða - Markalaust á Anfield

Ævintýrabyrjun Hull City á tímabilinu virtist ætla að halda áfram þegar liðið leiddi 1-2 í hálfleik á Stamford Bridge, en Joao Pedro gerði jöfnunarmark svo liðin tóku sitthvort stigið með sér heim eftir skemmmtilegan leik.

„Þetta var kannski skemmtilegur leikur en ég myndi frekar vilja vinna leiðinlegan leik heldur en að gera jafntefli í skemmtilegum leik," sagði Alonso, en Chelsea er búið að fá 12 mörk á sig í 6 leikjum hans við stjórnvölinn. „Ég vil frekar sigra heldur en að skemmta áhorfendum.

„Við gerum alltof mikið af mistökum og gefum alltof mikið af auðveldum mörkum. Við getum gert mikið betur og það er sárt og þungt fyrir okkur að fá svona mikið af mörkum á okkur. Mér finnst sóknarleikurinn á fínum stað, en við verðum að bæta varnarleikinn. Mér finnst ekki gaman að fá svona mörg mörk á mig. Ég veit að við getum gert mikið betur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.