Fotbolti.net
12.09.26 - 22:55
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir

Einkunnir dagsins: Raya og Branthwaite bestir

Einkunnir dagsins: Raya og Branthwaite bestir
Canon

Mynd: EPA

BBC hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir tvo lokaleiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
David Raya markvörður Arsenal var besti maður vallarins er Englandsmeistararnir héldu fullkominni byrjun á nýju tímabili áfram með sigri á erfiðum útivelli Sunderland.

Sunderland fékk dæmda vítaspyrnu þegar staðan var enn markalaus og varði Raya meistaralega. Hann var maður leiksins með 8 í einkunn en tveir samherjar hans fengu fjóra fyrir sinn þátt.

Þeir eru Myles Lewis-Skelly og Ezri Konsa. Lewis-Skelly fór af velli í hálfleik eftir slaka frammistöðu á meðan Konsa var í vandræðum allan leikinn og fékk dæmda vítaspyrnu á sig.

Reinildo Mandava er eini leikmaðurinn í liði Sunderland sem fær 4 í einkunn. Hann var heppinn að tóra á vellinum eins lengi og hann gerði en fékk að lokum seinna gula spjaldið seint í uppbótartíma fyrir augljóst brot á Bukayo Saka.

Jarrad Branthwaite miðvörður Everton var þá besti maður vallarins í markalausu jafntefli á Tottenham Hotspur Stadium.

Dominic Solanke, framherji Tottenham, var meðal lökustu manna vallarins með 4 í einkunn, alveg eins og Mohamed Kudus sem kom inn af bekknum og Brennan Johnson í liði Everton.

Sunderland: Roefs (6), Meunier (6), Mukiele (6), Danso (6), Ballard (7), Reinildo (4), Angulo (6), Sadiki (6), Xhaka (7), Le Fee (6), Brobbey (7)
Varamenn: Isidor (6), Fofana (6)

Arsenal: Raya (8), White (5), Gabriel (6), Konsa (4), Calafiori (6), Lewis-Skelly (4), Rice (6), Saka (6), Ödegaard (6), Tzolis (5), Havertz (6)
Varamenn: Guimaraes (7), Timber (6), Zubimendi (6), Eze (6), Merino (6)



Tottenham: Kinsky (6), Gray (7), Van Hecke (6), Van de Ven (6), Robertson (7), Bentancur (6), Tonali (6), Fernandes (5), Savio (7), Marmoush (5), Solanke (4)
Varamenn: Kudus (4), Bergvall (6), Tel (5), Tosin (6), Maddison (6)

Everton: Pickford (7), Maitland-Niles (6), Branthwaite (8), Tarkowski (5), Mykolenko (6), Armstrong (6), Garner (5), Dewsbury-Hall (6), Johnson (4), George (5), Barry (5)
Varamenn: Grealish (6), O'Brien (6), Hackney (6)
Einkunnir dagsins: Raya og Branthwaite bestir
Canon

Mynd: EPA

Einkunnir dagsins: Raya og Branthwaite bestir
Canon

Mynd: EPA

Einkunnir dagsins: Raya og Branthwaite bestir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.