Fotbolti.net
12.09.26 - 23:50
Ívan Guðjón Baldursson

4. deild: Hamar tapaði og Árborg vann

4. deild: Hamar tapaði og Árborg vann
Canon

Mynd: Guðmundur Karl/Sunnlenska.is

Tveimur síðustu leikjum deildartímabilsins í 4. deild lauk í dag, þegar Hamar tapaði á heimavelli gegn Úlfunum á sama tíma og Árborg vann nágrannaslag gegn KFR.
Hamar fer upp um deild eftir að hafa endað í öðru sæti, þrátt fyrir tapið í dag. Hvergerðingar leika því í 3. deild á næsta ári.

Hektor Orri Ingimarsson var maður leiksins með þrennu fyrir Úlfana á meðan Rodrigo Leonel Depetris gerði bæði mörk Hamars.

Magnús Hilmar Viktorsson og Benjamín Óli Ólafsson skoruðu mörk Árborgar, sem endar í þriðja sæti, gegn KFR sem forðaðist fall með góðri sigurhrinu í ágúst.

Hamar 2 - 4 Úlfarnir
0-1 Hektor Orri Ingimarsson ('3 )
0-2 Gunnar Skúli Finnbjörnsson ('17 )
1-2 Rodrigo Leonel Depetris ('23 )
1-3 Hektor Orri Ingimarsson ('25 )
2-3 Rodrigo Leonel Depetris ('74 )
2-4 Hektor Orri Ingimarsson ('78 )

KFR 0 - 2 Árborg
0-1 Magnús Hilmar Viktorsson ('6 )
0-2 Benjamín Óli Ólafsson ('64 )
4. deild: Hamar tapaði og Árborg vann
Canon

Mynd: Árborg/Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.