Fotbolti.net
12.09.26 - 23:30
Víðir Sigurðsson

Aðsóknin sú fjórða besta í sögunni

Þróttarar voru fjölmennir á bikarúrslitaleiknum í dag.

Þróttarar voru fjölmennir á bikarúrslitaleiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Áhorfendur á bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvellinum í dag þegar Þróttur úr Reykjavík sigraði Grindavík/Njarðvík voru 2.318 talsins.

Aðeins þrisvar áður hafa mætt fleiri áhorfendur á bikarúrslitaleikinn í kvennaflokki.
Áhorfendametið frá 2023 stendur áfram en þá komu 2.578 áhorfendur á Laugardalsvöllinn þegar Víkingur vann óvæntan sigur á Breiðabliki, 3-1.

Þá féll átta ára gamalt met frá árinu 2015 þegar 2.435 manns mættu á úrslitaleik Stjörnunnar og Selfoss þar sem Stjarnan hafði betur, 2-1.

Í millitíðinni komu 2.385 áhorfendur á úrslitaleikinn árið 2021 þegar Breiðablik vann Þrótt örugglega, 4-0.

Sjö sinnum hafa áhorfendur á bikarúrslitaleik kvenna verið tvö þúsund eða fleiri en það gerðist í fyrsta skipti árið 2014. Það eru eftirtaldir leikir:

2.578 – 2023 Víkingur - Breiðablik 3-1
2.435 – 2015 Stjarnan - Selfoss 2-1
2.385 – 2021 Breiðablik - Þróttur 4-0
2.318 – 2026 Þróttur - Grindavík/Njarðvík 2-1
2.266 – 2025 Breiðablik - FH 3-2
2.042 – 2016 Breiðablik - ÍBV 3-1
2.011 – 2014 Stjarnan - Selfoss 4-0

Þegar tvö þúsund manns komu á bikarúrslitaleik í fyrsta skipti árið 2014 var ársgamalt met slegið rækilega en 1.605 áhorfendur höfðu séð leik Breiðabliks og Þórs/KA árið áður og það var besta aðsóknin til þess tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.