Fotbolti.net
03.03.13 - 19:26
Hafliði Breiðfjörð

Jón Jónsson: Rosalega lélegt hjá okkur

Auglýsing
Jón Ragnar með Íslandsmeistarabikarinn síðasta haust.

Jón Ragnar með Íslandsmeistarabikarinn síðasta haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Þetta var eiginlega bara rosalega lélegt hjá okkur. Ég veit ekki hvað málið er en við lendum undir og það var eiginlega skrifað í skýin að við myndum lenda undir þó við höfum verið meira með boltann en vorum ekkert að skapa okkur,\" sagði Jón Ragnar Jónsson leikmaður FH eftir 3-1 tap fyrir Fylki í Lengjubikarnum í dag.
,,Þeir voru með hættulegar skyndisóknir og í fyrsta markinu hjá þeim vorum við á eftir mönnum fimm sinnum og maður beið bara eftir að einhver myndi hlaða í skot sem Finnur gerði. Það skipti engu máli hverju við ætluðum að breyta. Við bara mættum ekki til leiks.\"

Heimir Guðjónsson þjálfari FH gerði þrjár breytingar á liði sínu í hálfleik og Jón Ragnar var einn þeirra sem kom inná.

,,Ég var sjálfur bara að hita í hálfleik þannig að ég veit ekkert hvað hann sagði en það var alveg ljóst að hann ætlaði að breyta einhverju því hann lét okkur flesta fara að hita snemma í fyrri hálfleik.\"

,,Það þurfti einhverjar breytingar en því miður skiluðu þær sér ekki heldur og þó þeir hafi legið á sínum þriðjung mest allan seinni hálfleik var engin hætta sem við vorum að skapa. Það var eins og menn væru að bíða eftir að leikurinn væri búinn.\"


Nánar er rætt við Jón Ragnar í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.